08nóvember

Hausverkur

Ég er búin að taka út myndaalbúmin á síðunni, kannski virka þau út mánuðinn eða eitthvað svoleiðis en amk fara þau að hverfa. Ég setti samt nokkrar vel valdar myndir héðan inn á Myspace.

Ég er með hausverk og það bætir ekki úr skák að akkúrat núna þarf ég að standa upp frá leiknum og fara að baka pítsur fyrir krakkana því að mamma og pabbi eru í Bláa Lóninu og ætla að gista á hótelinu þar í nótt þannig að ég verð í mömmó í kvöld!

Sandra
08. nóvember 2008 klukkan 18:13
Sandra Heimisdóttir
3 athugasemdir
30október

Tilgangur lífsins

 

Hverju skiptir það hvort þú ert ríkur eða fátækur?
Hverju skiptir það hvort þú ert ástfanginn eða einmana?
Hverju skiptir það hvort þú ert hamingjusamur eða óhamingjusamur?
Hverju skiptir það hvort þú átt vini eða ekki?
Hverju skiptir það hvort þú ert menntaður eða ekki?
Hverju skiptir það hvort þú ert tilfinningaríkur eða tilfinningalaus?
Hverju skiptir það hvort þú sért feitur eða grannur?
Hverju skiptir það hvað þú gerir eða segir?
Hverju skiptir það hvort þú ert stressaður eða afslappaður?
Hverju skiptir það hvernig þér líður?
Hverju skiptir það hverrar trúar þú ert eða hvort þú ert trúlaus? 

Lífið er hvort eð er tilgangslaust og það endar alveg eins hjá öllum.

30. október 2008 klukkan 23:57
Sandra Heimisdóttir
2 athugasemdir
22október

.......

Jæja... It's official.... Ég er heimilislaus frá og með 1.nóvember!
Bílskúrinn verður ekki tilbúinn næstum því strax og ég þarf að flytja héðan fyrir mánaðarmót. Mér gengur líka hræðilega illa að pakka. Ég var samt að sparsla áðan.... Það mætti jafnvel segja að ég væri bara fagmaður í að sparsla.

Akkúrat núna sé ég semsagt fram á að falla í skólanum, verða heimilislaus og á endanum gömul piparjúnka sem er ennþá að vinna á spítalanum með lágmarkslaun.

En þetta er allt í lagi, ég á smá nammi og ekki komin með grá hár ennþá.
22. október 2008 klukkan 23:45
Sandra Heimisdóttir
6 athugasemdir
19október

Jæja.... maður er alltaf að reyna að komast áfram með það að pakka til að getað flutt í rólegheitunum. Það gengur semsagt ekkert alltof vel því að í hverjum kassa og hverjum skáp og hverri skúffu eru einhverjar eldgamlar myndir eða bréf eða póstkort eða eitthvað svoleiðis sem ég þarf alltaf að eyða hellingstíma í að skoða. T.d. fann ég fimm albúm með barnamyndum af mér.... tók sinn tíma að komast í gegnum það....

Annars er ég ekkert sérlega hamingjusöm núna... íbúðin mín neitar að hitna... alveg sama hvað ég stilli ofnana á milljón og loka gluggunum... þá er alltaf ísjökulkuldi hérna inni... eða einsog Hlynur orðað það einu sinni í rútu í skólaferðalagi: SKÍTFOKKINDRULLUKALT! Svo asnaðist ég til að horfa á hálfa Hannibal Rising í gær... stór mistök... gangi mér vel að sofna í kvöld í ískulda og með þessa mynd í hausnum!

Svo var ég hjá mömmu áðan... alltaf jafn gaman sko... ég er ekki einu sinni flutt þangað og hún er strax komin með milljón verkefni handa mér... ryksuga bílinn hennar, ryksuga anddyrið og svona ýmislegt.... yndislegt það... en ég nýtti samt tækifærið áðan og tók til í mínum bíl og ryksugaði hann... And I feel like a new person!

Óska eftir manneskju til að sjá um heimalærdóminn fyrir mig... ef þú hefur áhuga... endilega hafðu samband, mér þætti vænt um að losna við þetta helvíti... maður getur ekki horft á sjónvarpið eða gert neitt án þess að fá samviskubit yfir að vera ekki að læra!

Óska einnig eftir manneskju sem lítur út alveg einsog ég og er viljug til þess að mæta í vinnuna fyrir mig og eftirláta mér launin... það væri yndælt... ef þú hefur áhuga... endilega hafðu samband!

19. október 2008 klukkan 19:53
Sandra Heimisdóttir
3 athugasemdir
18október

Ţynnkudagur =/

Það sem ég ætti að vera að gera akkúrat núna:

-Pakka niður og henda drasli sem ég ætla ekki að eiga
-Brjóta saman þvott
-Vaska upp
-Taka til
-Vera hjá mömmu og pabba að hjálpa til í bílskúrnum
-Hætta að reykja
-Verkefni í stjórnmálafræði sem ég á að skila í kvöld
-Verkefni fyrir uppeldisfræð
-Fara í sund
-Fara með dót til mömmu og pabba
-Hætta að drekka Pepsi Max
-Ryksuga

Það sem ég er að gera:

-Horfa á sjónvarpið
-Vera löt
-Reykja
-Drekka Pepsi Max
-Horfa á verkefnin staflast upp
-Fá hausverk
....Semsagt ekkert
18. október 2008 klukkan 16:47
Sandra Heimisdóttir
3 athugasemdir
17október

Og ţó....

 

....kannski maður hendi inn einu alvöru bloggi fyrst að maður hefur alls ekki neitt að gera í vinnunni.

 

Þetta er helst í fréttum:

 

*Ég er að flytja aftur heim til mömmu og pabba, eftir tvær vikur. Pabbi minn vinnur nú hörðum höndum að því að búa til herbergi útí bílskúr sem er nógu gott fyrir prinsessuna hans...(það er ég)...

Ég get eiginlega ekki beðið eftir að flytja og eiga peninga fyrir fötum og dóti... það verður líka ljúft að fá eitthvað annað en núðlusúpu að borða á hverjum degi!

 

*Ég ætla að selja bílinn minn þegar að ég er flutt. Mamma og pabbi eru búin að vera svo dásamleg að bjóða mér afnot af Volvoinum og svo get ég bara labbað í vinnuna frá mömmu og pabba hvort eð er.

 

*Skólinn gengur ágætlega þótt ég sé örugglega fallin í sundi... er búin að mæta einu sinni... á semsagt eftir að mæta 23 sinnum sem ég er engan veginn að nenna.... fæ alltaf bara hrylling þegar ég hugsa um síðasta skipti þegar ég fór í Laugardalslaugina og sturtugólfið var bara ein hárflækja... nei þá fer ég heldur bara í sturtu heima hjá mér!!

 

*Stór hluti af sálu minni dó í síðustu viku þegar ég áttaði mig á því að fjólublái trefillinn minn, sem margir myndu segja að væri mitt helsta einkenni, var horfinn. Ég gerði dauðaleit alls staðar, heima hjá mér, heima hjá mömmu, í sjoppunni, í vinnunni, í bílnum og á fleiri stöðum en ég fann hann ekki. Svo núna fyrir örfáum dögum kemur hún Sunna frænka inná msn og bara: heyrðu gæskan þú gleymdir treflinum þínum hérna! Ég felldi tár af gleði!

 

*Ég er ennþá ástfangin af vinnunni minni þótt maður geti orðið brjálaður á hrokafullum nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum og læknum. Og auðvitað líka hjúkkunum sem halda að maður viti allt og geti allt og ætlast bara til þess að maður standi í alvöru undir þeim væntingum. En það er allt í lagi... ég sendi þeim bara eitrað augnaráð.... þær fá hausverk af því seinna um daginn! Múhaha!

 

En já held það sé nú varla meira í bili.

Loves, Sandra ;*

17. október 2008 klukkan 13:21
Sandra Heimisdóttir
Engin athugasemd
17október

Híhíhí... so true!!

Rakst á þetta á annarri bloggsíðu... þetta er bara brilliant!

Besta ráðið fyrir okkur stelpurnar er að hætta að pirra okkur á hlutunum og taka þessum elskum eins og þeir koma úr verksmiðjunni....

Orðabók :

"Ég finn þetta ekki"  =  Þetta féll ekki í hendurnar á mér

 

"Get ég hjálpað til við matinn ?"  = Af hverju er maturinn ekki tilbúinn?

 

"Það tæki alltof langan tíma að útskýra það"  = Ég hef ekki hugmynd um það hvernig það virkar.

 

 

"Ég hreyfi mig meira þessa dagana" = Batteríin í fjarstýringunni eru ónýt.

 

 

"Taktu þér smá pásu elskan, þú hamast alltof mikið" =  Ég heyri ekki í fótboltaleiknum fyrir helvítis ryksugunni.

 

"Þetta er áhugavert elskan"  = Ertu ennþá að tala.

 

"Elskan mín við þurfum ekki á dauðum hlutum að halda til að sanna ást okkar"  = Ég gleymdi brúðkaupsafmælinu aftur.

 

"Ég aðstoða við heimilisstörfin"  = Ég henti einu sinni óhreinu handklæði nálægt þvottakörfunni.

 

"Þú ert svakalega flott í þessum fötum"  = Gerðu það ekki prófa fleiri föt, ég er að deyja úr hungri.

 

"Ég saknaði þín"  = Ég finn ekki sokkaskúffuna mína, krakkarnir eru svangir og klósettpappírinn er búinn.

"Við deilum húsverkunum"  = Ég skít út, hún þrífur það.

 

"Mér varð hugsað til þín og keypti þessar rósir"  = Stelpan sem var að selja þau var algjör skutla

 

"Ég þarf ekki að lesa leiðbeiningarnar"  = Ég er fullfær um að klúðra þessu án þess að lesa mér til um það

 

"Við erum ekki villt, ég veit alveg hvar við erum"  =  Það sér enginn okkur á lífi aftur.

17. október 2008 klukkan 12:39
Sandra Heimisdóttir
Engin athugasemd
26ágúst


Egó:
Þið megið troða þessum helvítis appelsínugula dælulykli uppí rassgatið á ykkur!!!
Mafíustarfsemi, gleypandi peninga og fleira óprenthæft..... fokkjú!!!

Atlantsolía:
I'm all yours :*
26. ágúst 2008 klukkan 21:36
Sandra Heimisdóttir
Engin athugasemd
18febrúar

Sorry Helga ;)

Top Tens

  1. Are you single? yes
    2. Are you happy? yes
    3. Are you bored? Oh yes
    4. Are you sad? nope
    5. Are you Italian? no
    6. Are you German? no
    7. Are you Asian? no
    8. Are you cool? No, so hot!
    9. Are you Irish? no
    10. Are your parents still married? yes


TEN FACTS


1. Birth Place: Reykjavík
2. Hair Color: blonde
4. Hair style: normal...hahaha
5. Eye color: blue
6. Birthday: 25. july
7. Mood: pretty good
8. Where do you live? Laugardalnum, rvk
9. How many credit cards do you have? Only debet
10. Lefty/righty? righty


TEN THINGS ABOUT YOUR LOVE LIFE


1. Have you ever been in love? yes
2. Do you believe in love at first sight? no
3. Why did your last relationship fail? Don’t know, it just did
4. Have you ever been hurt? yes
5. Have you ever broken someones heart? Don’t know
6. Are you in love? no
7. Are you friends with your exs? yes
8. Are you afraid of commitment? no
9. Have you hugged someone within the last week? yes
10. Have you ever had a secret admirer? Yes hahahahahahaha


TEN THIS OR THAT?


1. Love or lust? Both please
2. Liquor or beer? liquour
3. Cats or dogs? dogs
4. A few best friends or many regular friends? few best friends
5. Television or Internet? Internet
6. Pepsi or coke? pepsi max
7. Wild night out or romantic night in? Romantic night in
8. Busch Gardens or Six Flags? Uh.....?
9. Night or day? night
10. IM or phone? phone


TEN HAVE YOU EVER


1. Been caught sneaking out? no
2. Been skinny dipping? Not in the sea ;)
3. Done something you regret? yes
4. Bungee jumped? no
5. White water rafted? no
6. Finished an entire jaw breaker? no
7. Wanted something/someone so badly it hurt? yes
8. Prank called a store? yes
9. Skipped school? Oh yes!
10. Wanted to disappear? yes


TEN PREFERENCES


1. Smile or eyes: smile
2. Light or dark hair: doesn’t matter
3. Hugs or kisses: hugs
4. Shorter or taller: taller
5. Intelligence or attraction: attraction
6. Romantic or spontaneous: both
7. Jock or Nerd? Doesn’t matter
8. Hook-up or relationship: relationship
9. Funny and poor OR Rich and serious funny and poor
10. Play the guitar or into sports: doesn’t matter


TEN LASTS

1. Last phone call you made: Tara
2. Last phone call you received: Andri
3. Last person you hung out with: Tara og Andri
4. Last person you hugged: Tara
5. Last person you tackled: hmmm.....
6. Last person you IMed:

7. Last person you kissed: I don’t kiss and tell!! or do I? ;)
8. Last thing eaten: rjómakúlur
9. Last thing you drank: pepsi max
10. Last site you went to: barnalandssíðuna hans Sveins Egils

18. febrúar 2008 klukkan 02:47
Sandra Heimisdóttir
3 athugasemdir
30október

Gleymd síđa ;)

Hallóóó..... vá var búin að gleyma þessari síðu!!!!!  mundi bara eftir henni í gær or sum þegar að ég fékk eitthvað sms: 99 kr hafa verið teknar af inneign þinni.... já...heyrðu takk fyrir það!!!!
kannski maður hætti bara með þessa síðu :s man enginn eftir henni og skoðara hana enginn

:)

30. október 2007 klukkan 12:11
Sandra Heimisdóttir
9 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Sandra Heimisdóttir
  • Netfang: litladros@hotmail.com
  • Stađur: RVK
  • Atvinna: Hjúkrunarritari
  • Hjúskaparstađa: hress ;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit